mišvikudagurinn 8. september

2.02.2010 | Lżsi verndar gešheilsuna

Þeir sem eru líklegir til að fá geðsjúkdóma geta dregið úr hættunni á því með því að taka inn lýsi daglega, samkvæmt nýrri rannsókn.

Rannsóknin benti til þess að dagleg inntaka lýsis væri jafnáhrifarík og geðlyf og drægi úr líkunum á geðsjúdómum á borð við geðklofa um fjórðung. Rannsóknarmennirnir telja að þetta stafi af því að omega-3 fitusýrur í lýsinu breyti boðum til heilans með þessum jákvæðu áhrifum.

Hópur vísindamanna frá Austurríki, Ástralíu og Sviss annaðist rannsóknina sem náði til um 80 manna sem taldir voru líklegir til að fá alvarlega geðsjúkdóma. Helmingur þeirra tók inn lýsishylki daglega í 12 vikur en hinn helmingurinn gervilyf. Ári síðar höfðu tveir í lýsishópnum fengið geðsjúkdóm en ellefu á meðal þeirra sem fengu gervilyfið. Vísindamennirnir komust því að þeirri niðurstöðu að á einu ári gæti einn af hverjum fjórum fyrirbyggt geðsjúkdóma með því að taka inn lýsi daglega.

Skýrt er frá rannsókninni í Archives of General Psyciatry. Reutersfréttastofan hefur eftir  G. Paul Amminger hjá Melbourneháskóla í Ástralíu, að  að omega-3 fitusýra, sem eru í lýsi, geti með ýmsum hætti stuðlað að því að vernda heilann. Þessi fitusýra sé hluti af heilafrumum og stjórni virkni tveggja efna sem tengjast boðskiptum, dopamine og serotonin. Þá eykur neysla lýsis einnig magn andoxunarefnisins glutathione.

Amminger segir, að ef frekari rannsóknir styrki þessar niðurstöður, virðist neysla lýsis geta verið örugg leið til að styrkja heilann og hamla á móti geðklofa eða algengari geðröskunum, svo sem sjúklegu þunglyndi og  geðhvarfasýki.

Vísindamennirnir eru nú að undirbúa frekari og umfangsmeiri tilraunir á áhrifum lýsis.

Heimild: mbl.is



Panta Einkažjįlfun
Póstlisti