Hvað er einkaþjálfun?
Einkaþjálfun er viðurkennd sem ein besta, þægilegasta og fljótlegasta leiðin til að komast í betra líkamlegt form. Það er aðhaldið sem fólk sækir í, skipulagningin í æfingunum, mataræðinu og kennsla við tækjaþjálfun. Það er það sem einkaþjálfun færir þér.
Það er sannað að fólk nær allt að helmingi meiri árangri, á mun skemmri tíma, í æfingum og fitubrennslu með aðstoð einkaþjálfara. Það er sama hvaða markmið þú hefur, góð skiplagning og stuðningur er alltaf undirstaðan að árangrinum.
Hvernig fer einkaþjálfun fram?
- Þjálfarinn fer yfir líkamlega stöðu og sníður prógram samkvæmt líkamlegri getu og markmiðasetningu hvers og eins.
- Æfingarprógrammið er sniðið að þínum þörfum og þú kemst að því að það er ekki kvöð að æfa heldur ánægja og nautn að hreyfa sig á heilbrigðan hátt.
- Þjálfarinn fylgir þér í gegnum alla æfinguna, kennir þér að gera æfingarnar rétt og leiðbeinir þér.
- Þjálfarinn fer yfir mataræðið, ráðleggur og bendir þér á þægilegri valkosti. Í sameiningu finnið þið þjálfarinn auðveldari leiðir til að halda áfram að njóta góðs matar og ná góðum árangri á sama tíma.
- Í lok hvers tíma eru teygjur, heitur pottur eða gufubað ef fólk vilja.
Fjárfestu í heilsunni - hún er það dýrmætasta sem þú átt.