Fituprósenta

Hér fyrir neðan er góð tafla til að styðja sig við í baráttunni við aukakílóin. Talið er raunhæft að missa um 0,5 - 1 kg af fitu á viku ef einstaklingurinn er mjög duglegur í fitubrennslu, mataræði og stundar reglubundnar lyftingar. Allt meira en það er mjög gott og frekar sjaldséð. Að mæla fituprósentu er mikilvægt til að fylgjast með árangri í fitubrennslu. Vigtin er lævís óvinur og hefur skemmt mikið fyrir mörgum. Hún segir eingöngu hvað við erum þung en ekki hversu mikið við erum búin að missa af fitu. Með fitumælingu sér maður hversu mikið er farið af fitu og hversu mikið af vöðvamassa hefur bæst við.
Dæmi: Kona æfir í mánuð og léttist ekki nema um 0,5 kg. Það er kannski ekki mjög hvetjandi, ef bara er fylgst með vigtinni, en eftir fitumælingu kemur í ljós að hún hefur bætt á sig 1,5 kg af vöðvum. Þannig að raun-fitubrennsla var 2 kg yfir mánuðinn sem er mjög gott. Með auknum vöðvamassa hraðast fitubrennsla um 80 kcal á sólarhring fyrir hvert kíló af vöðvum. Og með vöðvamassanum fæst líka stinnara útlit og betri vöxtur. Ekki láta vigtina skemma fyrir þér ánægjuna við líkamsræktina, heldur farðu reglulega í fitumælingu og sjáðu sannleikann.
Karlmaður
Aldur | Áhætta | Mjög gott | Gott | Sæmilegt | Lélegt | Mjög Lélegt |
19-24 | <6% | 10.8% | 14.9% | 19.0% | 23.3% | >23.3% |
25-29 | | 12.8% | 16.5% | 20.3% | 24.4% | |
30-34 | | 14.5% | 18.0% | 21.5% | 25.2% | |
35-39 | | 16.1% | 19.4% | 22.6% | 26.1% | |
40-44 | | 17.5% | 20.5% | 23.6% | 26.9% | |
45-49 | | 18.6% | 21.5% | 24.5% | 27.6% | |
50-54 | | 19.8% | 22.7% | 25.6% | 28.7% | |
55-59 | | 20.2% | 23.2% | 26.2% | 29.3% | |
60+ | | 20.3% | 23.5% | 26.7% | 29.8% | |
Kvenmaður
Aldur | Áhætta | Mjög gott | Gott | Sæmilegt | Lélegt | Mjög Lélegt |
19-24 | <9% | 18.9% | 22.1% | 25.0% | 29.6% | >29.6% |
25-29 | | 18.9% | 22.0% | 25.4% | 29.8% | |
30-34 | | 19.7% | 22.7% | 26.4% | 30.5% | |
35-39 | | 21.0% | 24.0% | 27.7% | 31.5% | |
40-44 | | 22.6% | 25.6% | 29.3% | 32.8% | |
45-49 | | 24.3% | 27.3% | 30.9% | 34.1% | |
50-54 | | 26.6% | 29.7% | 33.1% | 36.2% | |
55-59 | | 27.4% | 30.7% | 34.0% | 37.3% | |
60+ | | 27.6% | 31.0% | 34.4% | 38.0% | |