Árangurssögur

Niðurstöðurnar tala sínu máli.

Fleiri en 1.000 einstaklingar hafa náð árangri með fjarþjálfun hjá Kristjáni — raunverulegt fólk, raunverulegar niðurstöður.

34 kg farin
Ég er búin að missa 34 kíló síðan ég byrjaði og er bara mjög sátt með það. Sjálfstraust mitt er orðið betra, andlega heilsan líka, mjög góður þjálfari!
María Ribeiro
15 kg farin á 5 mán
Á 5 mánuðum hef ég misst 15 kg og farið að sjá vel á mér, bæði í ummáli og vöðvabyggingu. Mín reynsla af Kristjáni er mjög góð, get alltaf haft samband við hann.
Stefán Sindri
9 kg á 4 vikum
Undir þjálfun Kristjáns hef ég náð frábærum árangri, 9 kg á 4 vikum! Vel uppsett æfingaplan og regluleg eftirfylgni hans hjálpa manni að halda sér við efnið og kílóin fljúga af.
Hafþór Guðmundsson
11 kg fita, +3 kg vöðvar
11 kg farin af fitu, rúm 3 kg af vöðvum komin. Fyrir 5 mánuðum settum við okkur markmið og hann setti upp æfingaráætlun og matarplan. Rétti maðurinn til að breyta um lífstíl.
Steingrímur Jónsson
+5 kg vöðvar, −5% fita
Á aðeins 5 mánuðum náði ég mínu besta hlaupaþoli, jók vöðvamassa um 5 kg og lækkaði fituprósentu um 5%. Ég er í mínu besta formi í dag!
Örn Erlendsson
11 kg fita á 8 mán
Á 8 mánuðum hefur hann gjörbreytt líkamlegu ástandi mínu til betra! Eitt orð: Fagmaður!
Trausti Rafn Björnsson
14 kg farin á 4 mán
Fjarþjálfun hjá Kristjáni hjálpaði okkur að komast nær markmiðum á styttri tíma en við reiknuðum með. Æfingarnar komu okkur uppúr sófanum.
Ragnar og Annelise
10,7 kg farin á 3 mán
Kristján fer ekki útí neinar öfgar. Gott aðhald og eftirfylgni til að koma manni af stað og halda manni á réttu brautinni. Ég náði mínu 3 mánaða markmiði.
Sigrún Stefanía
8,4 kg á tveim mán
Ég hef misst 8,4 kg og finn mikinn mun á mér, bæði líkamlega og andlega. Við hittumst einu sinni í mánuði til að vigta og mæla. Besta ákvörðun sem ég hef tekið.
Hulda Ingvadóttir
Engar öfgar
Aldrei enst jafn lengi í þjálfun. Engar öfgar heldur heilbrigð leið með breyttum lífsstíl og nýju viðhorfi. Árangurinn hefur ekki látið á sér standa, ég sé mun í hverjum mánuði.
Katla Lovísa
Besta form lífs míns
Kristján hjálpaði mér að komast í besta form lífs míns með því að segja hlutina eins og þeir eru og setja skýr og raunsæ markmið. Einstaklingsmiðuð og persónuleg þjónusta!
Jónas Abel Mellado
Sjálfstraustið á uppleið
Sjálfstraustið, líðan og heilsan fór strax á uppleið þegar ég byrjaði. Hann setur upp krefjandi og fjölbreytt æfingaplön sem eru hvetjandi og hjálpaði mér mikið andlega.
María Héðinsdóttir
Aukið úthald og styrk
Kristján er jákvæður og hvetjandi þjálfari. Ég fór fljótt að finna mun á úthaldi og styrk og fjarþjálfunin hjálpaði mér að komast í betri rútínu í ræktinni.
Einar Logi Erlingsson
5 ára takmarki náð
Með hjálp frá Kristjáni er 5 ára takmarki náð. Hann er hvetjandi og heldur manni við efnið, jákvæður og algjör fagmaður.
Helga Bender
Ótrúlega góður árangur
Uppsetning Kristjáns á þjálfuninni er fjölbreytt og skemmtileg. Á stuttum tíma hef ég náð ótrúlega góðum árangri þökk sé góðri þjálfun og hvað hann fylgir manni vel eftir.
Sindri Guðmundsson
Tók mataræðið í gegn
Kristján hjálpaði mér að taka mataræðið alveg í gegn og leiðbeindi mér við æfingar. Virkilega gott að vinna með honum og ég er mjög ánægður með árangurinn.
Hákon Karlsson
Náði mínu markmiði
Kristján kom með sérhæfða þjálfun fyrir mig og leiðbeindi mér í gegnum allt ferlið. Hann tekur tillit til getu og hjálpar manni að ná sínu markmiði.
Helga Guðný
Frábær þjálfari
Kristján fann fljótt hvað hentaði mér, fór ekki út í öfgar en veitti mér gott aðhald og hvatningu. Alltaf gaman að mæta í mælingar og spjalla við hann.
Erla Rún Guðmundsdóttir
Rétt ákvörðun
Að skrá mig í þjálfun hjá Kristjáni var klárlega rétt ákvörðun. Hefði aldrei trúað að ég fengi áhuga á hreyfingu en með þægilegu og skilvirku æfingaplani tókst það.
Stefanía Ólafsdóttir
Eykur trúna
Það er auðvelt að leita til hans um ráð eða spurningar og hann eykur trúna á að maður geti sett stefnuna hátt og náð þeim markmiðum.
Arnþór Sigurðsson
Hvetjandi með góðar æfingar
Kristján er góður þjálfari, hvetjandi með góðar æfingar. Hann er duglegur að hvetja mann áfram og kemur með góða punkta varðandi þjálfunina og mataræðið.
Elín Friðriksdóttir
Nákvæmlega það sem mig vantaði
Kristján hjálpaði mér að komast af stað með persónulegu æfingaprógrami og jákvæðri hvatningu. Nákvæmlega það sem mig vantaði.
Ragnar Haraldsson
Vöðvarnir stækka
Ég ákvað að prufa þriggja mánaða prógram og get ekki annað en mælt með því. Kristján svaraði alltaf samdægurs, gaf sér tíma í vangaveltur mínar og minnti á svefn og mataræði.
Viðskiptavinur
Hjálpar að ná markmiðum
Æðislegt að finna fyrir betra úthaldi og að sjá vöðvana stækka! Þægilegt og skilvirkt æfingaplan.
Stefanía Ó.

Niðurstöður eru einstaklingsbundnar.